Ni�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1806 dögum
Dagsetning
10. febrúar 2012
21.11.2007 18:22:47 / laadies

Guðni Páll Viktorsson

Hann Guðni Páll okkar mun stíga á stokk á Broadway í kvöld að keppa um titilinn Herra Íslands 2007, hann Guðni Páll er árbæingur í húð og hár og hefur verið góðvinur okkar hér frá því fyrir langa löngu síðan. Við vildum bara óska honum innilega góðst gengis í kvöld, og við komum til með að horfa spenntar á okkar mann.  Það væri nú ekki leiðinlegt að eiga Herra Íslands með góðvin sinn ..... haa stelpur ;)  Við viljum einnig minna þá fáu sem enn skoða þessa síðu að endilega kjósa Guðna Pál í síma 900-3005.
Gangi þér vel í kvöld kall :)
Þínar vinkonur :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 20:45:30 / laadies

Já Fínt, Já Sæll

 

Ohh hvað eg hata að blogga - var búin að gera næstum því heilt súperdúperlangt bloggg en ýtti óvast á stroka út takkann og bloggið hvarf allt ... og þó svo að eg færi í forward þá kom allt fyrir ekki, það var farið .... :(

En ég var búin að blogga um að það væri ræðukeppni á morgum MS-FÁ .... var búin að tuða allan fjandann um það, kanksi bara betra að það strokaðist út því það myndi enginn nenna að lesa það. En ég ætla að segja aðeins frá því, semsagt æfingaræðukeppni a morgun sem ég hefði kanski getað verið að taka þátt í hefði ég ekki pissað á mig og ekki þorað en það verður bara að hafa það... Þetta veðrur persónuleg keppni á milli Mín og Tinnu á móti Írisi og Erlu ... eða semsagt eins og ég sagði áðan MS vs Fá og er umræðuefnið Rokk og tónlist djöfulsins og mæla MS-ingar á móti því en FÁ-vitar mæla með. Ég kvet alla að mæta á þessa keppni þar sem þetta er hugsanlega eina sanngjarna keppnin sem þessir skólar eiga eftir að keppa því að um leið og Morfís er komið taka MS á móti MH og geta alveg pakkað saman og farið heim strax .... Það eru allir í MS liðinu að stíga sín fyrstu skref og get ég vel sagt að eg hlakka mjög til að sjá þetta.

En ég ætla að taka smá blogg um hverjir eru hvar - þó svo að eg hafi ekki hugmynd um nákvæmilega hvar allir eru núna.

Íris Thelma

Íris Thelma er á "fullu" í FÁ þessa dagana að næla sér í stúdentinn með hárgreiðslunni, ásamt því sem að hún vinnur eins og berserkur alla daga eftir skóla. Hún er sem fyrr á lausu og bíðum við stelpurnar enn spenntar eftir prinsinum á hvíta hestinum fyrir hana. Hún er á fullu í skemmtanalífinu og geturu fundið hana á Corollunni sinni keyrandi eins og brjálæðingur, á bjórkvöldi, niðrí bæ eða bara að vinna.

Tinna Bjarndís

Tinna er á fullu í MS að næla sér í skólaleiða þrátt fyrir að vera nýkomin heim úr vikuferð hjá sínum heittelskaða Oddi Inga knattspyrnkappa í Danmörku. Þar borðaði hún álíka mikið magn ef kjöti og hún borðar yfirliett á hálfu ári og líkaði það vel. Hún er á fullu í fólboltanum með Fylki og átti hún þatt í velgengni þeirra í sumar. Reyndar er hún í fríi núna og veit ekkert hvað hún a að gera við tímann sem vanalega fer í æfingar. Hún er ekki eins virk í djamminu eins og vanalega og á bíó og spólutjill hug hennar allan þessa dagana.

Elsa Petra

Elsa er á fullu í Borgó ásamt því að berja frá sér flugur af óæðra kyninu. Hún er á lausu sem aldrei fyrr enda kominn með sinn skammt af sambandsveikinni. Hún er líka á fullu í fótboltanum og átti stóran þátt í velgengni þeirra í sumar, reyndar í fríi eins og Tinna en eyðir þá bara tímanm á myspace. Hún ræktar vinkonur sínar mjög vel og hatar ekki að hafa þær í kring um sig.

Erla Björk

Erla var að koma úr helgarferð í útlöndum ( New York ) minnir mig og verslaði þar fyrir allan peninginn eins og maður geriri yfirleitt í útlöndum. Hún er alltaf á fullu í vinunni og er mesti vinnualki sem ég þekki. Ef ég þekki Erlu rétt þá mætir hún ekkert allt of vel í skólann og hefur maður heyrt að MS veikin hafi fært sig yfir í FÁ með henni. Erla stefnir á að kaupa sér nýjan bíl og mun þá Kormákur verða ættleiddur. Erla er á lausu enn sem komið er.

Karen

Karen er alltaf jafn mikill námshestur og er hennar annað heimili Þjóðabókhlaðan og Menntaskólinn í Kópavogi. Ég hef lítið séð og heyrt í Kareni og veit ég lítið hvað hún er að aðhafast í lífinu og finnst mér það ekki nægilega gott. Eftirþví sem ég best veit er hún á bullandi lausu og bíður spennt eftir hestinum og prinsinum og öllu þessu sem við þekkjum.

Jóhanna

Jóhanna er á fullu að flytja þessa dagana í nýtt og glæsilegt hús þar sem hún fær sína eigin íbúð þar sem ég veit að ófáir hittingar eiga eftir að eiga sér stað. Hún Jóhanna vinnur á fullu í sundlauginni í Mosó og héf ég heyrt að hún eigi sundlaugina. Hún Jóhanna er eitthvað að virkjast í djamminu og er farin að fara út á lífið við hvert tækifæri.

Ég ..

Ég er á fullu skólanum ( MS ) þar sem ég er með mesta skólaleiða í heimi og hata skólann meira en allt. Ég er dauð í djamminu og nenni aldrei að djamma og er fárveik af sambandseveikinni enþá. Ég stefni á að fara að hreyfa mig á fullu þegar löppin mín verður komin i gott stand þar sem mér tókst að fljúga á hausinn um daginn og togna svona ferlega. En allars get ég lítið sagt um sjálfa mig. Nema jú ég fékk mér mæspeis áðan vegna þess hve mikið mér leiddist og skil ég lítið út á hvað þetta gengur og kem til með að gefast fljótt upp held eg.

Núna er ég farin að horfa á Næturvaktinu. Ég kvet enn og aftur alla til að mæta á morgun á ræðukeppnina í MS ... :)

Hef ekki meira að segja í bili

Thelma Lind Steingrímsdóttir


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 12:47:12 / laadies

Vetrarfrí...:D

Jæja Hææ hæ þa er komin tími til að blogga aftur alveg að koma vetrafrí  hjá okkur og hlakkar mér ekki lítið til að fá sma frí eða eg veit nu ekki með frí þar sem það er eila bara full dagskra hjá okkur stelpurnum..:D...

Miðvikud: Búningakeila og Salapartý..

Fimmtud: Ball hjá sumum og Bjórkvöld hjá öðrum..:D

Föstud Dirty south hja Erlu ekki neinni annari býst ég við haha Skínka..:Dhaha

Laugard: Djamm Djamm Djamm haha..:D

Síðasta vika var ekki lítið skemmtileg skelltum okkur á Bjórkvöld a fimmtudaginn sem endaði nokkuð skemmtilega haha..:D..vorum svo Ég, Erla,Jóhanna og Elsa og Thelma kíkti i sma hja mer a föstud bara að hafa það Kósý og horfa á Dream Girls haha..:D..aðeins of kósý svo á laugard fórum við að ná i Tinnu á flugvöllinn og fórum svo Til Elsu og gerðum okkur til þar og svo Enduðum við Jóhanna reyndar bara 2 í bænum stepur humm haa humm haha jæja en það var allavega ógeðslega gaman hja okkur okkur fannst  tímin til að fara heim þegar ljósin voru kveikthaha..svo var sunnudagurinn bara tekinn i algera leti.:D..

Þetta einkenndi laugardaginn:...Já fínt já Sæll já Fínt já sæll já fínt já sæll já fínt....haha og Elsa hélt að við værum voða sniðugar að búa þetta bara Til haha..

En jáa ætlaði bara að láta heyra aðeins í mér ..Sjáumst hress um Helgina sem byrjar hja mer a Miðvikud haha..:D

 

Íris Thelma.....:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 21:47:00 / laadies

Fylkisball og Fleira:D

Hæhæ  Íris Thelma hér aðeins of lagt síðan eg hef sest niður við og ákveðið að blogga en jæja við verðum nu að fara að vera duglegar við þetta stelpur ...

En á Laugardaginn þá skelltum við Stelpurnar Erla Guðný Rakel Elsa Thelma og Ég okkur á Fylkisball sem var sjúklega skemmtilegt ..við gerðum okkur til heima hja mér og byrjuðum aðeins að fá okkur i aðra tánna og fluttum okkur svo yfir til Tomma þar sem var heljarinnar partý Allir srákarnir úr árbænum eins og þeir lögðu sig (næstum því;)..en það var ekkerrt smá góð stemmig þar þetta var eins og i gamla daga þegar öll partyin voru..Svo um 12 leitið skelltum við okkur niðreftir og var Hljómsveitin Spútnik að spila fyrir Dansi og stóðu þeir sig feikna vel og held eg að eg tali fyirir okkur allra þegar eg segi að þetta var geggjað kvöld..:D..Ballið var svo búið kl 3 og röltum við heim um svona 5 leitið af sökum tveggja drengja sem voru fyndnir og lúmskir en samtsem áður mjög heitir hahaha..:D..En eg og Erla komum svo heim til min og eg get sagt að eg hafi nu eiginlega bara gjörsamlega steinrotast þvi að Erla var enn þa spjallinu við mig þegar eg var byjruð að hrjóta haha..:d

 

En vikan er buin að vera frekar þreytuleg er innilega ekki að nenna neinu en í dag fór eg nu samt að greiða fyrir 85blaðið i Ms sem var gaman að fa að taka þatt i fekk reyndar stöðumælasekt sem var ekki eins gaman..svo er eg bara buin að vera róleg ..Mútta og Pabbi svo a leiðinni til Kína a mrogun langar aðeins of mikið með þeim jaja Mamma vann ferð fyrir 2 til kina a 5 Störnu Hótel bara fyrir að vera snyrtipinni i vinnunni sinni jaa ekki leiðinlegt það..:D..Vona að eplið falli ekki langt fra eikinni i þetta skiptið...:D

En svo er það bara Bjórkvöld á Fimmtudaginn sé ykkur  Hress og Kát þar..

Ég býð Góða Nótt Íris Thelma...:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 23:39:56 / laadies

Blogg :)

Jæja þar sem ég er ein sem blogga hér á þessari síðu ætla eg að halda uppteknum hætti og skrifa niður nokkur orð sem liggja mér á hjarta. Reyndar er það eitthvað af skornum skammti en ég reyni þó aðeins.

Fyrst ætla að byrja á því að tjá mig aðeins um Busun MS-inga sem var núna á Fimmtudaginn, þetta var bara til háborinnar skammar, Rektor MS tók uppá því að banna busun í ms og vildi að þetta færi allt fram á siðsamlegu nótunum og busunin fór semsagt þannig fram að busarnir voru sóttir inni stofu af ræningjum og svo fóru þeir meðfram veggnum inní Skálholt þar sem busamyndin fór fram, þar átti víst eitthvað ólöglegt að hafa farið fram sem enginn sá, og eg vona það bara svona uppá andlit MS, svo voru busarnir látnir hoppa og hneigja sig og búið, og samt tókst rektor að verða reiður, afþví að þeir voru látnir gera hitler merkið, ég held að hann ætti að fara að íhuga sinn gang þessi maður, og leita sér að nýju starfi, jafnvel sem bókasafnsvörður eða á elliheimili, þar er allt svo rólegt og fínt, starf að hans skapi.


Hérna var búið að smúla mig á bensínstöð... :/

 Fyrir tveim árum síðan þegar ég var tekin í karphúsið í busuninni var okkur meðal annars þjappað öllum saman inní pínulítið svæði og við áttum að setjast oná hvort annað, dansa fyrir framan allan skólann, drekka mysu, og eitthvað annað sem líktist helst ælu, látin fara uppá svið og syngja, ég var látin fara í sleik við FISK og margt fleira ásamt því að eftir busunina var maður baðaður í öllum fjandanum og já þetta var bara sumt, þannig að fólkið sem er í MS núna slapp vel, og eg öfunda þau ekki, því þetta er góð minnig sem ég hefði ekki viljað fara á mis við.

 En svo í gærkvöldi var Busaball MS haldið og tókst það mjög vel, ég skemmti mér konunglega, bláedrú og sæl, dansandi af mér rassgatið, Tinna dansaði við vegginn og Írisi dansaði hmm hresslega.... En mér fannst þetta mjög fínt ball og hefur veri hvíslað að mér að næstkomandi böll verði jafnvel opin almenningi, sem er ekkert nema gott og gaman... :)

Eennnnn að öðru.....

Strákarnir okkar í 2.fl Fylki tóku við Íslandsmeistaratilti sínum í dag í fyrsta skipti í sögu Fylkis sem 2.flokkur verður Íslandsmeistari og vil ég óska þeim innilega til hamingju með það, þar að segja þeim sem ég á ekki eftir að hamingjuóska persónulega...  Ég öfundaði þá geðveikt mikið þegar þeir voru að taka við bikarnum og We are the champions var spilað og það var svo gaman hjá þeim, hef alltaf langað til að prufa þetta. Þeir tóku svo þjálfarann sinn og böðuð hann í Kampavíni og allur pakkinn var bara tekinn á þetta, og enn og aftur innilega til hamingju með titilinn strákar;)

En núna er föstudagskvöld, og eg sit heima með Njálu við hliðina á mér og er að reyna að byrja að lesa hana, en einhvernvegin fær alltaf eitthvað annað athygli mína, svosem skiljanlegt... en letin er að hrjá mig þetta kvöldið og vona ég bara að eitthvað gaman verði gert á morgun kanski í staðin.. :)

En ég kveð að sinni, stelpur fariði að blogga ...
Sæl að sinni og góða nótt

Thelma Lind Steingrímsdóttir "ofurbloggari"

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 14:31:08 / laadies

Put some cheese on my grill niggahh..:)

Góðan Daginn.....Ég ætla að taka það á mig að segja frá Laugardeginun síðasta, sem verður mjög eftirminnilegur fyrir okkur vinkonurnar, það er ég viss um.

Við stelpurnar vorum búnar að vera alla vikuna að stússast í afmælisgjöf fyrir afmælið hennar Írisar sem var á laugardaginn, við gáfum henni bók, þar sem hver og ein var búin að skrifa eina opnu og setja myndir og svona flotterí, svo gerðum við geggjað slide show með myndum af okkru vinkonunum og svo gáfum við henni geggjaðan lampa og spegil sem hana var buið að langa í lengi lengi, og þetta var sko ekkert RL collection skal ég segja ykkur. BEAT THAT :D



Um 11 hálf 12 leytið fór fólk að láta sjá sig og úr varð stórskemmtilegt partý, aðeins boðsgestir voru leyfirlegir í hús og heppnaðist þetta æðislega vel. Fólk var mis mikið útá þekju, sumir alveg en aðrir ekki neitt, ég tel mig hafa verið í seinni hópnum... KLárlega :)Ég veit ekki hversu mikið ég get sagt frá þessu partýi- þið stelpur bætið kanski bara inní...
En ég veit að íris þakkar æðislega vel fyrir sig....:)


Ég er svona að spá í að halda matarboð fyrir ykkur stelpur næstu helgi, þar sem ég átti alltaf eftir að halda uppá afmælið mitt, mitt verður þó ekki svona stórt eins og Írisar og banna ég allt vesen í kring um það, bara gamnan að hittast og borða saman, spjalla og þær sem vilja djúsa... klárlega ekki ég samt :) Þetta kemur allt í ljós þegar nær dregur...
TINNA LOBSTER SOUP -- ertu til?:)


Tinna er ALVEG með þetta á hreinu!!!


EN ég ætla að enda þessa færslu ... endilega bætið inní ef það eru einhverjar fyndar eða skemmtilegar sögur sem meiga fara hingað inn... :) En þegar ég skirfaði þessa færslu í gær var ég á leið á leik í Visa Bikar karla - FYLKIR - Fjölnir og var ég með smá yfirlýsingar, sem eru ekki á rökum reistar og finnst mér ekki viðeigandi að hafa þær hérna inná. Ég búin að verða fyrir aðkasti Fjölnismanna í skólanum í dag, þar sem allnokkrir Grafarvogsbúar stunda nám þar. En við stelpurnar létum okkur hafa það og kláruðum leikinn í þessu mesta rigningarrokarveðri sem ég hef séð og er ég mjög stollt af okkur sem stuðningsmönnum svo hananú:)

ÉG þakka fyrir mig - Viðringarfyllst Thelma Lind Steingrímsdóttir 

P.S ég auglýsi eftir peysunni minni ( svartri gollu ) ég hlít að hafa ruglast við einhvern því ég fór heim í svartri síðri peysu sem ég hef bara aldrei séð áður.. ef einhver saknar peysunnar sinnar þá er hún hjá mér... :)

P.S 2 ... Matthildur Lind varð 18 ára þann 2.sept og Sandra Björk í  gær og viljum við óska þeim innilega til hamingju með það :)

P.S 3 Ég varð að bæta inn ljóði sem ég fann um Elsu, hún Tinna gerði þetta í commenti á myspace og mér fannst þetta mjög áhugavert...

Sæta spæta sem má ey mæta,
hún vill vera gang'sta og er því með leng'sta
allir sjá pedró því hann er metró,
þú þanna með byssurnar sem færð allar hryssurnar....!!

( höf.Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir )


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 00:45:33 / laadies

Íris Thelma Kristinsdóttir

 

 

Svo segir í 2. gr. lögræðislaga nr. 71/1997

Í sjálfræðinu felst með öðrum orðum ekki fjárræði þótt fátítt muni núorðið að sjálfráða menn séu ekki fjárráða einnig, þar sem fjárræðis- og sjálfræðisaldur er nú hinn sami eða 18 ár, ólíkt því sem áður var.

Elskan okkar og Yndi okkar allra hún Íris Thelma Kiddadóttir ( og Drífu líka ) var að ná þessum merka áfanga núna þegar klukkan sló 00:00 að miðnætti 28.ágúst.

Semsagt fyrir ykkur hin sem ekki skilduð mig þá er afmælisdagurinn hennar Írisar okkar genginn í garð. Mun hún eyða deginum innnan veggna Fjölbrautaskólans við Ármúla þar sem vonandi flestir gleðji hana með knúsum og kossum, svo mun hún eyða tíma í faðmi okkar stelpnanna ásamt því að familýan fær sinn toll af tíma líka og hver veit hvað kvöldið fer í... það er mitt að vita, og ykkar að komast ekki að.

Hún Íris okkar, já ég segi okkar allra, því hún er sú manneksja sem vill öllum vel, er vinur þeirra sem eiga það skilið. Hún er alltaf til staðar ef eitthvað bjátar á hvort sem það eru vandamál í ástarlífinu eða manni vantar kjól, og allt þar á milli skal eg segja ykkur.
Hún Íris var svo heppin að fæðast inní fullkomna fjölskyldu og er heimili hennar okkar annar griðarstaður og fjölskyldan hennar tekið okkur stelpunum af mikilli hlýu og verðum við henni ævinlega þakklátar fyrir það.


´

Ef þið þekkið ekki hana Íris Thelmu þá eruði að fara á mis við samfélagið, hún er stelpan sem brosir á móti þér þegar þú labbar um allt súr út í lífið og tilveruna og bara það fær mann til að hressast við.

Þetta er orðið eitt væmnasta blogg í sögu síðunnar, en það er líka bara allt í lagi, því það skemtilegasta sem afmælisbarn dagsins gerir er að horfa á sorglegar myndir og grenja með þeim

 En Íris okkar, við elskum þig alveg í tætlur og vonum að þú eigir frábæran dag, því þú átt það skilið

Þínar vinkonur ;*;* þú veist hverjar við erum ;*;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 10:45:18 / laadies

Allt að gerast



Til hamingju við, við fáum verðlaun fyrir öflugustu bloggsíðu Íslands í dag, flestu bloggin, flestu myndirnar, nóg af skemmtilegum sögum og ég tala nú ekki um slúðrið fjúff , alltaf eitthvað nýtt að ske og STANSLAUST STUÐ!!!!  ( að eilífu jéee)

 Ég er sátt með okkur.... :)

Kveðja .... Leynipési :)


P fyrir Pési ....

ATH - þetta blogg er byggt á kaldhæðni í von um að síðan fari að lifna við, og beiðni um hjálp því ég hef ekkert að blogga um.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 18:00:06 / laadies

Thelma Lind Steingrímsdóttir

Elsku besta Thelma okkar,
Innilega til hamingju með 18.ára afmælið elskan okkar

Hafðu það frábærlega æðislega gott í dag krúttla

 

 


æ þú ert svo sæt

ástarkveðjur

Við stelpurnar;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 00:07:15 / laadies

Þjóðhátíð, stór fyrir sínu.

Þjóðhátíð ---- LÍFIÐ ER YNDISLEGT----

.... það er kominn tími á að láta fólk vita af síðunni.....

Það tók laini svona rétt rúma sjö tíma að gera sig til fyrir helgina, ég veit ekki um neina einustu manneskju sem er svona lengi að gera sig til fyrir eina útileigu. En allaveganna hún loksins lét sjá sig um svona fjögur leitið. Pakkað var í bilinn á sjö mínutum og lagt í hann " loksins". Fyrsta stop var bensínstöðin, þar var nú bara það helsta keypt, bensín og svoleiðis lagað. Laini var ekki lengi að skella íslenskutónlistinni í fóninn og byrja að þeyta raddböndin sín, sem gekk svona upp og niður. Um leið og hún var búin að blanda sér áfengi, fór henni að " ganga mun betur að syngja lögin".

Aldrei fannst mér þessi leið til bakka ætla að taka enda, en gerði það nú á endanum. Laini hélt uppi fjörinu þar, ekki bara fyrir mér , heldur öllu liðinu sem voru á leiðini til eyja. Ég ætla rétt að vona hennar vegna að þau hafi öll verið jafn full eins og hún ( hennar vegna ). Stúlkugreyið fékk að sitja framí hjá flugmanninum með einu skilyrði að hún væri ekki búin að setja sopa af áfengi inn fyrir sínar varir ( sem ég hreinlega skil ekki að flugmaðurinn hafi ekki tekið eftir ) Þetta voru lengstu sex mínutur lífs míns með laini blindfulla framí í einhverri pínupons flugvél. Ég beið bara eftir að fá að nota syndhæfileikana þarna niðri. En þetta blessaðist allt saman á endanum og komumst við heilar á húfi til eyja. Fórum í húsið sem við tjölduðum á , sem var á frábærum stað...beint á móti dalnum. ekki slæmt það. Skellt sér í útifötin, áfengi í hönd og fórum síðan að hitta Gústa, jón, einar og fleiri stráka. Og að sjálfsögðu farið í Dalinn. Föstudagskvöldið var algjör snilld, hitt endalaust mikið af fólki sem maður var ekki buin að sjá í aldir og ár og ég tala nu ekki um fólkið sem maður kynnist. en þótt þetta kvöld sé nú mest í móðu hjá mér, ég man nú ekki mikið hvað ég gerði af mér þetta kvöldið, man nú þó eitthvað.

En ég nenni nú ekki að fara að segja frá hverju einasta atriði sem gerðist og gerðist ekki í eyjum. Enda held ég að margt sem gerðist í eyjum eigi bara heima í eyjum. Margir öruggleg sammála mér í því. Veðrið var algjörsnilld þarna á laugardeginum, dýnurnar voru teknar fram og skellt sér í sólbað í svona rúma fjóra tíma sem var ekki slæmt. Veðurguðirnir ákvaðu nú að vera lengi í góðu skapi...heldur kom líka þessi snarklikkaði vindur og feyktu öllu til og frá. Það tók tjaldið okkur svona rúmlega nokkrar mínútur að eyðileggjast, stangirnar brotnuðu allar saman, og dótið var farið að fjúka þarna til hægri, vinstri. Pirringur kom upp í fólkinu, pælandi í hvar maður ætti að sofa laugardagkvöldið og sunnudagkvöldið. Þurftum að fara að ganga frá öllu draslinu í snarklikkuðu veðri. En þetta reddaðist allt saman á endanum. Og fólk var ekki lengi að fara í góða skapið aftur. Enda vorum við á Þjóðhátíð eftir allt saman. Þetta gerði bara ferðina eftirminnilegri ef eitthvað er.

Það sem stendur aðalega upp úr á þjóðhátíð var brekkusöngurinn, mér fannst hann algjörsnilld, flugeldasýningin á eftir og svo aðsjálfsögðu blýsinn frægu. Sem toppuðu þetta allt saman í lokinn. Laini var svo sannarlega góð í að láta sig hverfa í fangið á einu heitum peyja ( þórði). Brekkusöngurinn var sungin Sissa, Guðna, adda, arnór, valla, sigurgeir, og Bjarka. Sem var snilld útaf fyrir sig, ég skemmti mér alveg kongunglega. Raddböndin voru vel þanin þarna í brekkunni, og lögin misvel sungin, eftir kunnáttu. Ég stóð mig ekkert alltof vel þegar það kom að Þjóðsöngnum, ég fer að koma með í að læra hann fyrir næstu þjóðhátíð.

En svona svo ég komi nú eitthverju frá mér án þess að skrifa bók í biblíu lengd ætla ég að henda nokkrum punktum á þetta :

* Stórskvísu árbæjar var sárt saknað á þjóðhátíð, henni irisi minni, hún fékk reyndar að upplifa þetta allt saman í beinni í símanum, þar sem hún var mjög oft í símanum og ég tala nu ekki um hana unni mína. Eins gott fyrir þær að skella sér mað á næsta ári. Það munaði nú ekki miklu að íris mundi hoppa upp í næstu flugvél og koma til mín. Ég var heldur betur ekki sátt þegar hún gerði það ekki.

* Kristín ósk var elt á röndum þarna í eyjum af einhverjum eyjapeyjum, þeir voru heldur betur að fýla stelpuna.
* Jóna og brynjar krúttlegri en allt. ( sumir ekkert æðislega sáttir við það).hehe
* Skarphéðinn málaði bæinn heldur betur í mörgum litum. Gól og skammir einkenndu strákinn.
* skemmtilegar samræður komu upp á Café maríu...um strák sem væri búin að sofa hjá fjölda stelpa. Stuttu síðar komst maður af því hver að maður þekkti hann. Lítið land, lítið land.
* Toby stóð fyrir sínu, gerði stelpurnar snarklikkaðar.
* Hvíta Tjaldið hjá Birki hlyns var góður staður til að slaka á og hlusta á slúður, hvað fólk væri að gera af sér þarna.
* Gaman að hitta Þuru og vera aðeins með henni í eyjum. Mörg ár eru liðin síðan maður ætlaði að heimsækja hana til Eyja. En aldrei gert. Kíkti í heimsókn til hennar, Biggi kæróinn hennar stóð algjörlega uppúr þar, og skemmti okkur með að hringja í kollu og rugla í henni.
* Það kveiknaði næstu því í húsinu hjá ömmu og afa hennar kristínar , þar sem sléttujárn gleymdist kveikt og kveikti í eitt styki af peysu eða svo.
* " ég er í sjooooki" var aalgjörlega orð okkar kristínar og Jónu. Það var kannski aðeins offf notað. en gerði góða hluti þó.
* Uuuu myndarvélinn hennar lainiar gerði aftur á móti ekki góða hluti og varð batteríslaus á leiðinni til Bakka. þannig það er nu ekki mikið um myndir. :(

Allaveganna það gerðist margt skemmtiegt þarna, sem ég held að sé ekkert sniðugt að festa niður á blað, best að halda því fyrir sjálfa sig og þá sem voru í eyjum, svo maður fari nu ekki að koma upp um einhvern.

Ég er ekki sátt hérna alein heima stelpur mínar, allir búnir að yfirgefa mann eitthvað til útlanda, Íris Thelma Kristinsdóttir og Erla Viljið þið koma ykkkur aftur til mín á klakann.

En ætli maður segji þetta ekki gott.

Karen Guðmundsdóttir. ( Er ekkert hægt að gera í þessari bloggsíðu í mac tölvu:O:O ég er i sjokkkii!!! , ég get ekkert gert...:( ekki sátt. )

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 20:46:12 / laadies

Halló:d

Halló Skvísurnar mínar hvad segidi gott??? aetladi bara aeins ad lata vita af mer herna af Benedorm sem er adeins of nice liggjandi i solbadi a daginn út ad borda vid anna k erum reyndar abra bunar ad kikja a djammid einu sinni en tad er svona Íslendingaparty a Jokers a morgunn sem er adal Íslendingabarinn herna tannig ta skellum vid okkur  -a og hittum allt lidid erum reyndar meira i slokun hedur en djamminu en tad ma vera sma svoleidis herna med for i mollid og vid misstum okkur gjorsamlega:dhaha en herrud elskurnar aaetladi bara ad lata vita ad eg vaeri a lifi herna Love ju Baejó..:*:*

KV:Íris Thelma..:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 22:41:41 / laadies

"Get the groove on, shake the booty & cut the air...... you sneaky one!"

Í dag, 3 ágúst á Tinna Bjarndís yndi með meiru afmæli og fangar hún 18 ára afmæli sínu.


Tinna ásamt Oddi sínum..


Hún Tinna okkar er ein sérstakasta manneskja sem fyrir finnst í heiminum og á hún fáa sína líka, innbyrðis geymir hún einn mesta bjána sem ég þekki, og læðist hann út hvað eftir annað og finnst okkur það ekki leiðinlegt .....
Eitt aðal merki Tinnu er að hún er alltaf með nesti, hvar sem er og hvenar sem er, maður getur alltaf treyst á að hún leyni á eins og kexpakka eða einhverju gúmmelaði í veskinu sínu.

Hún mun fagna afmælisdegi sínum í "Sveitinni" eins og hún kallar það, skyldi það vera því hún veit ekki hvað það heitir?? Allavega er það sveitabær í sveitinni og vonum við að hún hafi það gott þar, og hafi nú fengið eins og eitt SNICKERS í tilefni af deginum, þar sem það telst undir veislumat hjá henni.

Við ættum að leggja saman í púkk stelpur og kaupa kassa af SNICKERS handa Tinnu, hvernig líst ykkur á það?  

En aðal tilgangurinn með þessu bloggi var að óska henni Tinnu okkar innilega til hamingju með daginn, þar sem það er nú hefð að fá eitt stykki ammó blogg þegar maður á afmæli.

Elsku Tinna okkar, vonandi áttu æðislegan dag, og við knúsumst allar eitt stórt knús þegar þú kemur í Reykjavíkina. Þú ert frábær og við Elskum þig

Kveðja
Þínar Vinkonur ;*;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 09:19:26 / laadies

Eyjar á næsta leiti!!!

sælir!

Sorrý bloggleysi, hef verið upptekin, flóknara er það nú ekki.
Annars er allt kengimagnað að frétta af mér as usual, vinni vinn everyday og svona. En ætli sumarið sé ekki bara tíminn sem bloggheimurinn hrinur, og svo hrynja blogginn aftur inn í vetur þegar maður fer að heimsækja tíma í menntaskólanum í kóp. Sumarið búið að líða alltof hratt, það er alveg óhuggnanlegt. Mér finnst eins og ég sé bara nýkominn í norðurá, og allt að verða búið þar. Búin að vinna eins og brjálaðingur þetta sumarið, plús skólinn. Lesa náttúrufræðina og enskuna til skiptis. Það verður off nice þegar þetta er búið, hehe eða reyndar þá byrjar skólinn. ómægat ég á svo heldur betur eftir að fá viðbjóð í haust af lærdómi. það eru ekki nema 20 dagar í skólann...viljið pæla...trúi því ekki.

laaaaaaaaaaaaaaaaa......Eyjar " ÞJÓÐHÁTÍÐ" TAKK FYRIR HALLÓ á mrg. Váá ég get ekki beðið það verður geðveikt. Er að fara með henni Laini minni, það verður truflað. Erum búnar að vera að fara yfir um í sveitinni, syngjandi íslensku lögum fram og aftur. Það sem söngröddinn er nú ekki beint upp á bestu fiska, þá hefur fólk ráðlagt okkur að syngja ekki, heldur bara hreyfa varirnar. ég veit nu ekki bara bilun það er...hehe. Mútta og pabbi heldur betur æði, ætla að gefa okkur allan pakkann til eyja. Ekki slæmt það, þurfum ekkert að borga.
- Ég held við séum nú ágætlega reddý fyrir eyjar, þar sem laini á ekki eitt stykki ullasokka, þá þarf ég að pakka fyrir tvo af ÖLLU hehe, sem er náttúrlega ekket nema krúttlegt.
- Það eru svona nokkur ár síðan maður byrjaði að væla yfir því að fá að fara til Eyja um versló...og svo er maður bara á leiðinni..ég var reyndar ekkert á leiðinni fyrst ég ætlaði bara að vera heima " algjör auli" að læra undir prófin, svo ég mundi nú alveg pottþétt ná. En neei neei ákvað svo að skella mér bara fyrir nokkrum dögum, gaman að fara með svona stuttum fyrirvara. Margir búnir að bíða í marga mánuði.
- jáá ég tala nú ekki um að vera í eyjum með henni kristínu minni. Ég held það toppi hana enginn þegar hún er full. aðeins offfff skemmtileg.

What happens in " eyjum" stays in " eyjum " hahahahaha.

ooohhh, ég er ekki búin að sofa í eina einustu mínútu í nótt. Undanfarnar tvær vikur hef ég verið með stanslausan höfuðverk, Er næstum því með höfuðverk 24/7 sem er ömurlegt. Mígrenið heldur betur að segja til sín. Var næstum sofnuð um 2 leitið en síðan fékk ég líka þennan hrikalega höfuðverk, það var eins og það væri blokk á hausnum á mér. Allaveganna þá hef ég ekkert sofnað. Frekar ömurlegt.

Ég fékk loksins að veiða í Norðurá. Eftir öll þessi ár sem mamma og pabbi hafa verið með ánna, og ég tala nú ekki um þau ár sem ég hef unnið þarna. En fórum að veiða frá 27-30 júlí. Eg, mútta, pabbi, Laini, Jón Gerald, árni, maggi og dýrleif ( allt vinafólk). Ekki leiðinlegt að fá að veiða í FYRSTA skipti í einni af dýrustu ánnum, frítt. En það var geðveikt, allir voru heldur betur vel fullir, vorum með pikknikk, tónlistin í hámarki. Aðsjálfsögðu veiddu ALLIR fisk nema ég og laini. Enda kunnum við varla að kasta stönginni. hehe en það er nú önnur sagan. Ég sem hef alltaf verið að segja við múttu og daddy hvernig í óskupbónum þau nenna að fara alltaf að veiða, standa úti í á og bíða eftir einhverju svakalega heimskum fiski að elta fluguna. En þetta var oofff gaman. VEiðitúrarnir eiga heldur betur eftir að vera fleiri.

Ég og laini skelltum okkur til Húsafells 29 júlí. Þar sem við vissum báðar ekki hvar húsafell var, þurftum við að spurja til vegar. Vinur hennar lainar sagði okkur að það væri " RÉTT" hjá baulu. og þar sem við vorum að vinna þá ákváðum við að skella okkur. byrjum að keyra á stað....og keyrum, og keyrum...og keyrum aðeins lengur. ( bjargaði okkur var söngurinn) en jæææja vorum búnar að keyra í þónokkurn tíma fram hjá allskonar furðulegum hlutum. ákváðum við nú að hringja og spurja hvar í anskotanum þetta væri. En við komumst þanngað á endanum....það voru svona 10 manns vakandi þarna...heldur betur dautt svæði.
- ég get skoh sagt ykkur kæru vinir að húsafell er ekki " RÉTT" hjá baulu , það er svona 40 mín frá baulu.. ( bara svona ef þið eruð á leiðinni þanngað ) annars held ég að allir vita hvar Húsafell er. Fyrir utan okkur tvær.

En jæja ætli maður fari ekki núna að gera eitthvað af viti, læra undir prófin eða skella sér í ræktina...og leyfa henni unni minn að sofa aðeins ( þar sem hún var að koma, og er nefninlega " veik" í vinnunni.)

Karen Guðmundsdóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 22:57:30 / laadies

...

Gott Kvöld góðir landsmenn nær og fjær ..

 Í fréttum er þetta helst að þessi síða er eins dauð og lanbakjötið sem ég borðaði í kvöldmat og við erum óvinsælli en Leonce stelpur, 30 manns að koma á síðuna í dag, það er svakalegur fjöldi finnst mér miða við það að ekkert skeður dögum saman inná síðunni..

 Ég, sem hef pottþétt frá minnstu að segja af öllum er þó að taka mig til og reyna að blogga, en það er ekki afþví að mig langar til þess heldur leiðist mér bara svo ógeðslega mikið að þetta var það skemmtilegasta sem mér datt í hug að gera.

Seinustu helgi fór ég í afmæli hjá Árdísi vinkvennu minni og neyta ég því ekki að stemmingin var svolítið vandræðaleg til að byrja með, en um leið og vigdís varð full og fór að haga sér eins og fífl fór þetta að léttast og maður spjallaði við hinn og þennan ..... hún ákvað að grilla pulsur klukkan 10 um kvöldið fyrir okkur öll haha og mikið fannst mér það fyndið, pulsur og kók í 18 ára afmæli .... ásamt reyndar áfengi sem rann létt óní flesta þarna.


Vigdís fulll - eða andsetin                                           Thelma og Árdís

Ég hef nú ekki glóru hvað ég get sagt, ég heimta að fá svona "Hver er hvar blogg" held að Íris verði nú að taka það að sér, þar sem hún hefur held eg samband við flesta, Karen ertu á lífi ( bannað að segja frá aula-listinni minni um daginn ) Jóhanna langt síðan ég hef séð þig ... jáhh viti menn.....

Ég ákvað að skella mér áðan að horfa á stelpurnar keppa, en svo var mér svo íllt í mallakút að eg fór heim í hálfleik... ömurleg vinkona ég veit....

Stelpur ætliði að gera eitthvað um helgina? Íris er a fara á löngufjörur á hestbak.... shit hvað eg öfunda þig knapi ;)

En þetta var glatað blogg, ég ætla að halda áfram að hakka í mig vínber og jarðaber ( vantar bara ísinn í stóru dollunni ;) eins og einmanna konunrnar í bíómyndunum gera....

Og já ég sem elska að eiga afmæli ætla að minna á nokkur afmæli í bráðina

Föstudaginn 3 ágúst ( já eftir viku ) á Tinna okkar afmæli
Sunnudaginn 12 ágúst ( eftir 16 daga ) þá á ég Thelma Lind afmæli
Þriðjudaginn 28 ágúst ( Eftir marga daga ) Þá á Íris Thelma afmæli

Gaman að því....

Shit hvað ég er lélegur bloggari....

-Thelma Lind Steingrímsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 19:22:27 / laadies

Það er Klárlega kominn tími á eitt ammó blogg að hætti laadies .. :)

Góðan Daginn

 Þar sem við erum bestar í heimi að gera afmælisblogg, og það er langt síðan við höfum gert svoleiðis þá langar mig að gera eitt stór afmælisblogg hér á þessa steindauðu síðu....

 

Ætla að byrja á 16.júlí

Þennan dag, semsagt á mánudaginn átti okkar ástkæra Jóhanna Jónsdóttir eða Jóga Flipp eins og ég kýs að kalla hana afmæli og fagnaði hún 18 aldursári sínu með pompi og prakt.
Það eru mörg falleg orð sem hægt er að segja um hana Jóhönnu en það fyrsta sem mig dettur í hug er hversu einstaklega snoppufríð hún er, og jú hún er með hjúllur, svo mikið er rétt :)
EN hún Jóhanna okkar hefur svo mikið annað en það, hún hefur þennan einstaka húmor sem fylgir okkur stúlkunum, sérstaka sönghæfilega ásamt því að vera bara algjör snillingur.

En Jóhanna mín, við höfum nú ekki alltaf verið "BESTU" vinkonur ég og þú hahaha en mikið svakalega er ég glöð að þekkja þig í dag.... :)

 Innilegar hamingjuóskir frá okkur stelpunum beint uppí Mosó til þín ... :)




Svo næst ætla ég að taka 18.júlí



Sem er semsagt í dag, því hann Guðni Páll Viktorsson a.k.a GPV a.k.a súkkulaðistrákurinn a.k.a rivertown-módelið á líka afmæli í dag og er hann að ná þeim merka áfanga að vera 20 ára, og má hann þá loksins byrja að drekka bjór, hann hefur beðið eftir því lengi hann Guðni okkar:) Hvað getur maður sagt um hann Guðna Pál, þegar við komum pínku litlar gælgjur í árbæjarskóla, hver var aðal spaðinn í 10 bekk sem tók okkur opnum örmum, jú auðvitað hann Guðni okkar og höfum við því miður ekki losnað við hann enþá .... nei grín við erum heppnar stelpur :)


Guðni að taka við Módel samingi


Við viljum óska Guðna Pál líka innilega til hamingju með daginn, og vonandi að hann eigi nú góðan dag :)
P.S shit ég trúi ekki að ég hafði sett myndir af honum í bloggið og ekki borgað fyrir það.. :)

Já ég vil þakka fyrir mig, fyrir að hafa gert eitt væmnasta blogg í sögu síðunnar, en það má, ég er líka í svona emotional skapi og verð ábyggilega næstu tvær vikur, svo ekki bögga mig, annað hvort ber ég ykkur í stöppu eða knúsa ykkur í drasl :)

Kær Kveðja fyrir hönd okkar allra

Thelma Lind Steingrímsdóttir " félagslega þroskaheft " eins og elsa vill meina :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
RSS tengill